UM OKKUR

UM OKKUR

"Lærðu létta sveiflu á tveim dögum"

Komið og dansið


Samtök áhugafólks um almenna dansþátttöku á Íslandi, voru stofnuð haustið 1991. Samtökin hafa undanfarna vetur staðið fyrir auðveldum dansnámskeiðum fyrir bæði börn og fullorðna. "Lærðu létta sveiflu á tveim dögum" er yfirskrift dansnámskeiða á vegum samtakanna Komið og dansið. Aðalmarkmið námskeiðanna er að kynna auðlærða dansa sem höfða til allra aldurshópa og að námskeiðin væru svo stutt að allir teldu sig geta fórnað þeim tíma til að kynnast dansi og dansgólfi. Námskeiðin eru ýmist Tveggja daga námskeið 2 tímar í senn eða 3-4ja kvölda námskeið einu sinni í viku. Námskeiðin hjá KOMIÐ OG DANSIÐ miðast fyrst og fremst við að fá fólk til að þora að dansa, og henta því vel þeim sem lítið eða ekkert hafa gert í dansmálum.

Þeim sem meira kunna hefur þótt þetta ágæt viðbót, þótt ekki sé dansinn flókinn. Reynslan af námskeiðunum hefur sýnt að ótrúlegur fjöldi fólks sem kominn er til vits og ára hefur lítið sem ekkert dansað, en þeir hinir sömu orðið mjög áhugasamir og sótt fjölda námskeiða og séð hve dansgleðinni fylgir mikil ánægja og hvað hreyfing, hiti og sviti, hefur góð áhrif á sál og líkama. Námskeiðin eru kjörin fyrir þá sem hafa lítinn tíma, eða vinna vaktavinnu og ekki geta bundið sig til lengri tíma, og nóg og stutt til að kanna hvort nokkuð er að hræðast. Námskeiðin eru kjörin vettvangur fyrir hópa, vinnufélaga, saumaklúbba og fjölskyldur til að gera eitthvað saman, stutt, ódýrt og skemmtilegt.


Fyrir fullorðna er einkum um að ræða swing og sænskt bugg, en einnig hafa verið haldin námskeiðin  “ Verðum ballfær “ þar sem kenndir eru fleiri dansar sem nýtast vel á dansleikjum. Kynslóðabil er ekki til hjá KOMIÐ OG DANSIÐ og því eru námskeiðin kjörið tækifæri fyrir alla fjölskylduna 14 ára og eldri til að læra dansinn saman. Samtökin bjóða einnig barnanámskeið fyrir grunnskóla og sérstök námskeið fyrir nemendur framhaldsskóla. Við minnum á sérstök tilboð til starfsmannafélaga og hópa sem leiða til lægri námskeiðsgjalda, og möguleika á að halda námskeiðin í eigin húsakynnum sem lækkar gjöldin enn frekar. Kynningar á námskeiðsdönsum eru í boði fyrir stjórnir félaga og starfsmannastjórnir. Námskeiðin eru kjörin vettvangur fyrir hópa, vinnufélaga, saumaklúbba og fjölskyldur til að gera eitthvað saman, stutt, ódýrt og skemmtilegt. Námskeiðin henta vel þeim sem lítið eða ekkert hafa dansað. 

"A dancing lesson for the whole family"

Come and dance


Come and dance is an organization of people who like to dance. The main goal is to get people to learn simple dances lessons but most of all to enjoy it. Come and dance offer a dancing lessons for the whole family, but no younger than 14 years of age.


The lessons are usually two and a half hour, for two days. So if you are one of those people who have always wanted to learn to dance but never had the courage to do so, this is your chance, sign up!

GUNNAR ÞORLÁKSSON

Gunnar Þorláksson er látinn. Gunnar stofnaði samtökin Komið og dansið árið 1991 að fyrirmynd KOM OG DANS í Noregi. Gunnar var lengstum formaður samtakanna og var leiðbeinandi í ýmsum dönsum ásamt eiginkonu sinni Kolbrúnu Hauksdóttur allt fram á síðustu daga. Þeir sem hafa verið á dansnámskeiði hjá Gunnari minnast hans sem góðs og skemmtilegs leiðbeinanda. Samtökin votta Kolbrúnu og fjölskyldu þeirra samúð sína. Skarð Gunnars verður erfitt að fylla.

Share by: